03.10.1946
Neðri deild: 10. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í B-deild Alþingistíðinda. (132)

3. mál, sveitarstjórnarkosningar

Bjarni Ásgeirsson:

Mér þótti rétt að vekja athygli á því atriði í n., sem hv. frsm. hefur nú minnzt á. Nú skilst mér, að n. hafi ekki séð sér fært að taka þessa breyt. til nánari meðferðar, og þar sem svo er, mun ég ekki leggja áherzlu á, að það verði gert, og mun ég ekki bera fram brtt. í samræmi við það, sem ég þó hefði álitið, að tiltækilegt væri og rétt. Mun ég því ekki hreyfa því atriði frekar.