25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í B-deild Alþingistíðinda. (328)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Skúli Guðmundsson:

Ég tel mikið skorta á, að þetta mál hafi verið undirbúið til afgreiðslu svo sem átt hefði að vera, ég tel einnig, að meðferð þess í þinginu sé nú orðin önnur en viðunandi geti talizt, þar sem málið er svo mjög þýðingarmikið. Ég vil því ekki hafa frekari afskipti af því á því stigi, sem það nú er, og greiði ekki atkv.