13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (1041)

239. mál, þjóðleikhús

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Mér þykir skrítið hjá hæstv. forseta, að þegar enginn er á mælendaskrá og liggur beint við að slíta umr., að hann skuli ekki gera það, nema ef hann ætlar sjálfur að tala, en hér er þá varaforseti hans viðstaddur. En ef hæstv. forseti leggur áherzlu á að ljúka ekki umr. nú, nema því aðeins, að till. séu teknar aftur til 3. umr., legg ég til, að umr. verði lokið nú og till. teknar aftur til 3. umr.