21.12.1946
Neðri deild: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1288 í B-deild Alþingistíðinda. (1435)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Jörundur Brynjólfsson:

Það er nú þannig, að hvorug brtt. við fyrirsögn frv., hvorki á þskj. 250 né 248, fellur fullkomlega inn í. Úr þessu má bæta með því að bera brtt. á þskj. 248 upp sem brtt. við till. á þskj. 250, því að slík brtt. fellur alveg við frv. eins og það er nú orðið, ef samþ. verður.