08.01.1947
Neðri deild: 49. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1317 í B-deild Alþingistíðinda. (1544)

60. mál, aldurshámark opinberra starfsmanna

Jörundur Brynjólfsson:

Ég vil beina því til hæstv. forseta, að þar sem þetta er síðasta umr. þessa máls hér í hv. d., þá væri það æskilegt, að d. væri nokkurn veginn fullskipuð, þegar atkvgr. færi fram, en nú skortir mjög á, að svo sé. Vildi ég mælast til þess, að hæstv. forseti vildi fresta atkvgr. að þessu sinni og sjá til, hvort þm. koma ekki fljótlega til þings.