13.02.1947
Efri deild: 72. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1714)

112. mál, tilraunastöð háskólans í meinafræði

Gísli Jónsson:

Með því að upplýst var við umr., er mál þetta var samþ. á síðasta aukaþingi, að ekki þyrfti eins marga menn og nú er ákveðið í þessari grein, þá sé ég enga ástæðu til að fjölga þeim og segi því nei.

Brtt. 370,1 samþ. með 9 shlj. atkv.

4. gr. svo breytt samþ. með 9 shlj. atkv.

5. gr. samþ. með 9 shlj. atkv.

Brtt. 370,2 (6. gr. falli niður) samþ. með 10 shlj. atkv.

7.–8. gr. (verða 6.–7. gr.) samþ. með 10 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 9 shlj. atkv.