27.02.1947
Efri deild: 81. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (216)

24. mál, tekjuskattsviðauki 1947

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. — Ég vil aðeins lýsa yfir því, að þótt ég væri einn þeirra manna í fjhn., sem fyrr á þinginu lagði til, að frv. þetta yrði samþ., tel ég viðhorfið nú vera annað, þar sem þörf er meiri breyt. á skattamálunum. Fyrir mér er því eðlilegra að láta málið bíða þeirra heildarbreytinga.