12.12.1946
Sameinað þing: 17. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2003 í B-deild Alþingistíðinda. (2598)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Gísli Jónsson:

Út af fyrirspurn hv. 1. þm. N-M. vil ég upplýsa það, að þetta mál, sem hann talaði um, hefur ekki legið í salti í fjvn. Það hefur verið sent til umsagna viðkomandi aðila. Þeirra umsagnir liggja fyrir og hafa verið ræddar á fundi n. Annað þetta mál var á dagskrá í dag, en hinu málinu var frestað samkvæmt ósk frá einum manni í n., og hefur ekki verið gerður ágreiningur út af því. Og getur hv. 1. þm. N-M. fullvissað sig um þetta hjá flokksbróður sínum, sem á sæti í n. Ég mun ekki fara efnislega út í málið nú, enda þótt hv. þm. gerði það, en ég mun athuga, hvort hægt er að afgreiða málið nægilega snemma.