22.12.1946
Sameinað þing: 20. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2049 í B-deild Alþingistíðinda. (2642)

Þinghlé

forseti (JPálm) :

Verkefni þessa fundar er það eitt að lýsa yfir frestun á fundum Alþ. Það er komið að jólum, og mun nú hefjast þinghlé til 7. janúar.

Vil ég því leyfa mér að árna hv. þm. gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þakklæti fyrir hið liðna, og utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.