20.05.1947
Efri deild: 138. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1776 í B-deild Alþingistíðinda. (3030)

151. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Ég þarf ekki að halda uppi löngum umr. Ég er sammála hv. 1. landsk. um rökin fyrir því, að þetta sé réttmætt, en ég er alveg viss um, að málinu er stefnt í hættu, ef þessi brtt. verður samþ., því að form. sjútvn. Nd. telur betra, að málið falli, en að þessi gr. fari inn, og vil ég því ekki tefla því í tvísýnu, að málið nái fram að ganga. Ég vænti því, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og það liggur fyrir.