19.02.1947
Neðri deild: 77. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í C-deild Alþingistíðinda. (4255)

164. mál, skipun innflutningsmála

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Ég vildi flytja hér stutta aths. vegna yfirlýsingar hv. flm. Hann sagði, að ekki hefði nein atkvgr. farið fram í Alþfl. um þetta frv., og er þetta rétt hjá hv. þm., að það var ekki farið fram á það við hann, að frv. yrði ekki flutt, heldur var óskað eftir því, að frv. yrði ekki flutt að svo stöddu, og mér er kunnugt um, að meiri hl. flokksins stóð að þessum tilmælum.