17.04.1947
Sameinað þing: 43. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í D-deild Alþingistíðinda. (4725)

53. mál, meðferð opinberra mála

Forseti (JPálm):

Út af ábendingu hæstv. dómsmrh. vil ég taka það fram, að ég hef hugsað mér að hafa þann hátt á viðkomandi þessari brtt., þegar lagt er til, að þáltill. sé gerbreytt, þannig að hún hafi kostnað í för með sér, að skoða þessa umr. sem fyrri umr. af tveimur umr., enda þótt það sé ekki tiltekið á dagskrá. Getur því fundurinn ákveðið, hvort þáltill. fari til n. eða ekki.