13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1001 í B-deild Alþingistíðinda. (990)

238. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Eins og nái, ber með sér, þá hafa einstakir nm. rétt til þess að bera fram brtt. um skiptingu skemmtanaskattsins, en þær hafa ekki komið fram enn. Ég vil því upplýsa, að ég tel ekki æskilegar breytingar, því að við athugun held ég, að menntmrh. hafi ratað sanngjarnt, farið skynsamlegan meðalveg.