22.03.1948
Efri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (1864)

67. mál, eignarnám byggingarlóða á Sauðárkróki

Frsm. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Eins og nál. ber með sér, voru allir nm. sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ., og þarf ég ekki að orðlengja það. Það lá fyrir frá hv. flm. í Nd. allýtarleg grg. um nauðsyn þess fyrir Sauðárkrók að fá yfirráð yfir lóðum á þeim stað, sem gert er ráð fyrir í frv., en þorpið er nú lóðalaust. — Ég leyfi mér því fyrir hönd n. að mæla með því, að frv. verði samþykkt.