10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Út af fsp. hv. þm. S-Þ. viðvíkjandi till. um lyfjabúðir þá er það mál til athugunar í n., og býst ég við, að þeirri athugun verði fljótt lokið. Það er nú svo, að þau málefni, sem berast n., þó að góð þyki við fyrstu sýn og þyki einföld, þá er það ætíð svo, þegar þau eru athuguð nánar, að þau koma ekki strax aftur frá n., þar með talin allshn.