17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1230 í B-deild Alþingistíðinda. (2036)

Orlofsfé þingmanna

Hermann Guðmundsson:

Herra forseti. Ég var ekki hér er þessar umr. hófust, en þegar ég kom inn, var verið að tala um orlof þingmanna. Ég veit ekki, hvað hefur komið hv. 4. þm. Reykv. til að spyrja um þetta. Ég hef fengið greitt orlof og enda krafizt þess, því að ég er ekki fastlaunamaður hjá ríkinu.