11.11.1947
Efri deild: 17. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í C-deild Alþingistíðinda. (2284)

76. mál, ríkisborgararéttur

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Frv. þetta er flutt af hálfu ríkisstj. til þess að velta nokkrum mönnum íslenzkan ríkisborgararétt. Ráðun. hefur nú eins og áður borizt töluvert af umsóknum um þessi réttindi en við undirbúning frv. sýndist mér ekki nægilegt tilefni til þess að taka upp í það aðra en þá sem telja mátti óvefengjanlega eðlilegt. að réttinn fengju. Hitt væri hægt að athuga nánar við meðferð málsins á Alþ., hvort það vildi bæta fleiri mönnum þarna við.