22.01.1948
Neðri deild: 42. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í C-deild Alþingistíðinda. (2546)

107. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Meiri hl. fjhn. hefur fallizt á till. frá tollstjóra um að gefa stj. heimild til að setja reglugerð um það efni, sem um ræðir í þessu frv., heldur en að samþ. frv. stj., sem borið hefur verið fram samkvæmt þeim brbl., sem út voru gefin í haust um útflutning og innflutning á íslenzkum og erlendum gjaldeyri. Ég skal fúslega játa, að það er enginn stór munur á þessum tveimur leiðum, en meiri hl. n. þótti þetta samt eiga betur heima í reglugerð og bar frv. sitt fram í samræmi við það.