10.12.1947
Efri deild: 30. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í C-deild Alþingistíðinda. (2852)

104. mál, sölugjald af jörðum

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki misbjóða þolinmæði hæstv. forseta, en vil aðeins lýsa yfir því, að þessa ræðu mun ég taka til athugunar við 2. umr. Ég hef ýmsu að svara í henni, en vil aðeins benda á það í þetta skipti, að þessi leið, sem hv. þm. benti á, að aðallega væri fær, það er leið, sem yfirlýst er í grg., að ekki hafi þótt fær. — Hitt læt ég þá deila um, hann og hv. frsm., hvort það er rétt, að hv. frsm. hafi verið fulltrúi þeirra manna í n., sem ekkert vilji gera nema fyrir sjálfa sig.