22.01.1948
Neðri deild: 43. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í B-deild Alþingistíðinda. (341)

51. mál, tekjuskattsviðauki 1948

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég tek undir það, sem báðir síðustu ræðumenn hafa sagt, en þetta er svo einfalt atriði, að ég sé ekki, að málið þurfi að ganga til n. þess vegna. Ég leyfi mér því að leggja fram brtt. þess efnis, að lög þessi öðlist þegar gildi.