05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í D-deild Alþingistíðinda. (3557)

48. mál, brýr á Álftaskálará og Vatnsdalsá

Jón Pálmason:

Ég vil aðeins segja það, að það verður byrjað á Blöndubrú svo fljótt sem fé er fyrir hendi. En út af því, sem þessi þm. (PZ) hefur lagt til viðvíkjandi Vatnsdalnum, vil ég segja það, að þetta er ekki nema kattarþvottur fyrir hann og hans flokk út af þeirra fyrri till. í þessu máli, þar sem þeir snerust gegn því nauðsynjamáli, sem brúarbyggingin er.