17.11.1947
Efri deild: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (49)

21. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ég ætla ekki að ræða þetta mál efnislega, en ef frv. verður samþ. nú, þá finnst mér óheppilegt orðalag í niðurlagi 3. gr. frv., og leyfi ég mér að leggja fram skriflega brtt., að í stað orðanna „ákveðið það í samráði við framleiðsluráð með reglugerð“ komi: ákveðið það með reglugerð í samráði við framleiðsluráð. — Þetta er aðeins orðalagsbreyting.