18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í B-deild Alþingistíðinda. (603)

127. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Hv. 4. landsk. gat þess í sambandi við þá brtt., sem hann ber fram á þskj. 541, að hann bæri hana fram til þess að fá réttari hagskýrslur. Það er þó svo, þvert á móti því sem hv. 4. landsk. hélt fram, að þetta getur haft í för með sér rangar hagskýrslur, samanborið við það, sem liðið er. Vísitalan mundi hækka um 19 stig, og þó að þetta hafi ekki áhrif á kaupgjald í landinu nú, mundi það geta valdið misskilningi og pólitískir spekúlantar notað sér það í áróðursskyni með röngum samanburði.