20.03.1948
Sameinað þing: 58. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (931)

129. mál, fjárlög 1948

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Það er ljóst, að ef till. verður samþ. eftir að samþ. var brtt. áðan, þá hefur þetta í för með sér 3–4 millj. króna útgjöld fyrir ríkissjóð, og þar sem ekkert er gert jafnframt til þess að mæta þeim útgjöldum, þá segi ég nei.