14.12.1948
Efri deild: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (1710)

80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Steingrímur Aðalsteinsson:

Þrátt fyrir það að brtt. sú, sem ég flutti hér með þm. Barð., hafi verið felld, þá vil ég ekki tefja þann stuðning, sem þessu frv. er ætlað að veita bátaútveginum, og þar sem ég vænti líka, að tilgangur brtt. okkar náist við framkvæmd þessara væntanlegu laga, segi ég já.