06.05.1949
Efri deild: 98. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (2627)

207. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Björn Ólafsson:

Það liggur hér ekkert fyrir nýtt í málinu eftir umr. um það. Það hafa ekki heldur komið neinar brtt. fram við það, og ég sé þess vegna ekki neina ástæðu til þess, að máli þessu verði vísað til n., þegar svona er komið. Enda sé ég ekki, að málinu þurfi að flýta svo mikið, að það sé nauðsynlegt að hafa um það allar umr. hér í hv. þd. í dag og setja það í n., því að ég geri ráð fyrir, að það verði ekki tekið fyrir til meðferðar í hv. Nd. á morgun. Ég segi því nei.