07.03.1949
Neðri deild: 76. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (3305)

88. mál, húsaleiga

Forseti (StgrSt):

Út af fyrirspurn hv. 3. þm. Reykv. skal ég geta þess, að hæstv. aðalforseti d. gerði ráð fyrir, að þetta mál yrði tekið af dagskrá að sinni. Ég sé, að fyrir liggur nál, frá minni hl. allshn., en ekki frá meiri hl. En að sjálfsögðu skal ég koma þeim boðum til skila, að þetta mál verði næst tekið á dagskrá og þá til umr.