14.10.1948
Efri deild: 3. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í C-deild Alþingistíðinda. (3657)

3. mál, menningarsjóður

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég vil benda mönnum á, að eftir venju fara til fjhn. mál, sem tilheyra skattalöggjöf og lántöku fyrir ríkissjóð, en venjulega ekki önnur mál, þótt um einhver útgjöld sé þar að ræða, heldur fer þar eftir eðli málsins, til hvaða n. þau fara, þannig að þetta mál á heima hjá menntmn. eftir þingvenju.