26.04.1949
Efri deild: 89. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í C-deild Alþingistíðinda. (3804)

138. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þar sem það hefur lengi verið talið, að nauðsynlegt væri að lengja vinnutíma við ríkisstofnanirnar, og þar sem þetta er eina þingtill., sem fram hefur komið um það og ekki óþinglega á neinn hátt, þá mun ég greiða henni atkv. mitt og segi já.