14.12.1948
Neðri deild: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í C-deild Alþingistíðinda. (3882)

38. mál, útrýming minka

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. 8. f. m. var vísað til landbn. 38. þingmáli, um útrýmingu minka. Enn sem komið er hefur ekkert vitnazt um þetta mál, og þar sem það er ekki með öllu óþekkt hér á Alþ. og hefur verið flutt nokkrum sinnum og rætt og að því er ég ætla allvel upplýst og þar sem ég enn fremur hef orðið þess var, að hér hefur verið útbýtt miklu plaggi meðal þm., sem snertir þetta mál, hefði ég viljað vænta, að ekki drægist lengi, að n. léti málið koma til meðferðar hér í d., og vildi gjarnan forvitnast um þetta.