14.12.1948
Neðri deild: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í C-deild Alþingistíðinda. (3885)

38. mál, útrýming minka

Steingrímur Steinþórsson:

Ég veit ekki, hvers konar æsingur hefur gripið hv. 1. þm. Árn., hvaða talsmáti þetta er, sem hann leyfir sér að hafa í þinginu. Hann snýr út úr orðum mínum. Ég sagði, að n. væri að vinna að málinu og mundi skila því, þegar því yrði lokið, og endurtek ég það nú, en lofa engu.