25.02.1949
Sameinað þing: 44. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í D-deild Alþingistíðinda. (4831)

73. mál, Kaldaðarnes í Flóa

Eiríkur Einarsson:

Ég greiddi atkv. með því, að málinu væri vísað til ríkisstj. Nú er atkvgr. um það, hvort málið eigi að fara til fjvn., og ef það yrði fellt, þá skuli málið fara til allshn., skilst mér. En þar sem svo vill til, að formenn á þessum skútum eru forustumenn einnig í sókn og vörn um þetta mál, annar form. allshn. og hinn form. fjvn., þá mun ég við hvorri tveggja till. segja nei.