21.03.1949
Neðri deild: 84. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (5516)

168. mál, framfærslulög

Frsm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. flytur frv. þetta samkvæmt beiðni félmrn., og fylgir því allýtarleg grg. Ég sé því ekki ástæðu til þess að fjölyrða um það. N. hefur ekki enn tekið málið til formlegrar meðferðar, en mun taka það til meðferðar milli 1. og 2. umr. og skila nál.