06.05.1950
Efri deild: 101. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)

46. mál, sauðfjársjúkdómar

Forseti (BSt):

Það er vitað mál, að brtt. á þskj. 619 getur ekki orðið borin hér upp, því að hún er stíluð við brtt., sem ekki liggur hér fyrir. En flm. till. hefur nú borið fram brtt. við sjálft frv., þess efnis, að á eftir orðunum „að dómi nefndarinnar“ í síðustu málsgrein 6. gr. bætist: og sauðfjárpestirnar hafa lengi mætt á og valdið miklum skaða.

Þessi brtt. er skrifleg og of seint fram komin, og þarf afbrigði, sem ég leita hér með.