09.05.1950
Sameinað þing: 46. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1564 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

Varamaður tekur þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Þorsteinn. Þorsteinsson):

Herra forseti. Kjörbréfan. hefur á fundi sínum nú athugað kjörbréf próf. Ólafs Björnssonar og hefur ekkert við það að athuga, og allir fjórir nefndarmenn, sem mættir voru, lýstu sig því samþykka, að hann taki nú sæti á Alþingi í stað hv. 7. þm. Reykv., og leggur n. til við Alþingi, að það samþykki þessa breytingu og próf. Ólafur Björnsson taki nú um skeið sæti 7. þm. Reykv., Gunnars Thoroddsens.