20.12.1949
Sameinað þing: 12. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (148)

Þinghlé

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. E`,g vil leyfa mér fyrir hönd allra alþingismanna að þakka hæstv. forseta góðar óskir í garð þm., og vil ég fyrir hönd þeirra óska honum gleðilegra jóla og góðs árs. Tökum allir undir þær óskir, að við megum hittast heilir til nytsamlegra starfa á nýju ári, og vil ég biðja hv. þm. að standa á fætur til að taka undir þær óskir. — [Þm. risu úr sætum.]