16.12.1949
Efri deild: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í B-deild Alþingistíðinda. (1531)

41. mál, skipun læknishéraða

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég veit ekki til þess, að ég hafi sagt hér nein þau orð um Gunnar Thoroddsen, sem ekki voru sönn. Ef hv. þm. Barð. getur bent mér á annað, þá geri hann það. En ég sagði, að hann væri í n. og ekki bólaði neitt á áliti hennar. Ég hef tvísvar sinnum gert fyrirspurn um þetta í Sþ., en því hefur ekki verið svarað, en hvort Gunnar Thoroddsen hefur verið þar staddur, veit ég ekkert um. Eysteinn Jónsson hefur líka, meðan hann var ráðherra, skrifað n. um þetta, en ekki fengið álit hennar enn. Hvort þm. Barð. hefur þá verið í þinginu, veit ég hins vegar ekki. En þetta hefur sem sagt tvívegis verið gert.