04.01.1950
Sameinað þing: 13. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (156)

Þinghlé

forseti (StgrSt):

Ég vil leyfa mér að bjóða háttv. alþingismenn velkomna til starfa á ný eftir jólahlé, og einnig vil ég geta þess, að margir utanbæjarþingmenn hafa tjáð mér, að þeir væru nú á leið til þings, og munu þeir flestir geta mætt hér næstu daga.