20.12.1949
Neðri deild: 19. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1144 í B-deild Alþingistíðinda. (1660)

76. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Í sambandi við skrifl. brtt., sem ég lýsti, get ég fallizt á að taka hana aftur að þessu sinni, þar sem fyrir liggur, að samþ. á frv. til hálfs, og þar sem gera má ráð fyrir, að ekki verði fluttir inn bifreiðavarahlutir á þessum tíma, sem frv. á að gilda sem lög, og þar sem hæstv. ríkisstjórn enn fremur hefur lýst yfir, að hún muni taka efni brtt. minnar til velviljaðrar athugunar.