28.04.1950
Neðri deild: 90. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1418 í B-deild Alþingistíðinda. (2312)

49. mál, húsaleiga

Frsm., meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):

Ég vil leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann láti atkvgr. ekki fara fram um þetta mál á meðan deildin er svona þunnskipuð. (ÁkJ: Ég held, að hæstv. forseti ætti að lofa þm. að vera fjarverandi, því að þeir hafa forðað sér til þess að þurfa ekki að samþ. frv.).