10.03.1950
Neðri deild: 62. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í C-deild Alþingistíðinda. (3080)
128. mál, Iðnskólar
Frsm. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Frv. til l. um iðnskóla hefur oft verið flutt á Alþingi, víst fimm eða sex sinnum. Hins vegar var þetta frv. flutt á síðasta þingi, nær alveg óbreytt, en hin frv. voru nokkuð öðruvísi. En þetta er eitt af sérskólafrv. milliþn. í skólamálum og var lagt fram í fyrra.
Hæstv. samgmrh. hefur sent iðnn. þetta frv. og falið henni að annast flutning þess. Einstakir nefndarmenn hafa þó óbundnar hendur um afstöðu til málsins.
Í fyrra fylgdi ýtarleg greinargerð, er mælti með frv., og sé ég ekki ástæðu til að rekja hana og vísa til þess, sem áður hefur verið sagt um mál þetta.