25.04.1950
Efri deild: 93. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í C-deild Alþingistíðinda. (3242)

60. mál, notendasímar í sveitum

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég mundi nú hafa óskað þess að geta verið með þessari fjárveitingu, eins og svo mörgum öðrum, því að hér er um þarfar framkvæmdir að ræða. En mér finnst, eins og fjárhag ríkisins er nú komið, vera full erfitt að standa undir hinum allra nauðsynlegustu útgjöldum, sem þegar hafa að mestu verið ákveðin, og segi því nei.