06.05.1950
Efri deild: 101. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í C-deild Alþingistíðinda. (3421)

129. mál, kaup á ítökum

Gísli Jónsson:

Hv. frsm. landbn. hefur viðurkennt gagnrýni hæstv. ráðh. á þessari brtt. og talað sjálfur um að breyta henni allverulega. Hann hefur hins vegar ekki getað fallizt á að taka till. aftur, og sé ég því ekki ástæðu til að greiða henni atkvæði og segi því nei.

1. gr. (verður 2. gr.) samþ. með 10 shlj. atkv.

2. gr. (verður 3. gr.) samþ. með 10 shlj. atkv.

Brtt.637,2 samþ. með 9 shlj. atkv.

3. gr. (verður 4. gr.), svo breytt, samþ. með 11 shlj. atkv.

4. gr. (verður 5. gr.) samþ. með 11 shlj. atkv.

Brtt.637,3 (ný gr., verður 6. gr.) samþ. með 9 shlj. atkv.

5. gr. (verður 7. gr.) samþ. með 10 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 10 shlj. atkv.