10.01.1950
Neðri deild: 26. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í B-deild Alþingistíðinda. (346)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Steingrímur Steinþórsson:

Ég hefði talið eðlilegast að framlengja þennan kafla dýrtíðarl. óbreyttan. En þar sem hv. þd. hefur nú farið að grauta í þessum kafla og tekið úr honum liði, sem að mínum dómi eru ekkert rétthærri en aðrir, þá sé ég mér ekki annað fært en að segja já við þeirri till., sem hér liggur fyrir.