20.12.1949
Sameinað þing: 12. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (3514)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Ég tel, að launahækkun fyrir þetta ár sé gerður hlutur, og tel því eðlilegt, að laun þau, sem hér um ræðir, séu greidd þannig til áramóta. En jafnóeðlilegt tel ég að samþ. ákvæði um launauppbót fyrir næsta ár. Hins vegar finnst mér enn, eins og ég tók fram í vor, að þeir, sem samþ. þetta, beri ábyrgð á því, og tek þess vegna ekki þátt í atkvgr.