10.05.1950
Sameinað þing: 47. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í D-deild Alþingistíðinda. (4088)

906. mál, byggingarkostnaður síldarverksmiðja

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason) :

Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans við fyrirspurninni. Ég tel henni svarað á fullnægjandi hátt með því vilyrði, að þm. gefist kostur á að kynna sér skýrslu endurskoðunarnefndar. Ég vona, að það geti orðið sem fyrst. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir fram fyrir það að eiga þess kost að kynna mér plaggið sjálft.