17.12.1949
Neðri deild: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1543 í B-deild Alþingistíðinda. (49)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Eysteinn Jónsson:

Mér skilst á hæstv. forsrh., að hann telji það líka of mikla frekju að gera ráð fyrir, að þeir, sem taka að sér að mynda ríkisstj., geri sér ljóst fyrirfram, hvaða vandamál það eru, sem bíða úrlausnar, og hvernig eigi að leysa þau. Ég aftur á móti álít, að menn eigi að gera sér ljósan vandann, áður en þeir taka að sér að leysa hann.