19.12.1949
Sameinað þing: 11. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1555 í B-deild Alþingistíðinda. (67)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Gísli Jónsson:

Mér heyrðist hæstv. forseti vera að lýsa dagskrá Sþ. á morgun. En ég vildi eindregið mælast til þess, að þáltill. um ábyrgð ríkisins á láninu handa Flateyjarhreppi yrði tekin fyrir þá, úr því að það er eigi gert núna. Er það mál mjög áríðandi.