18.03.1950
Neðri deild: 70. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í B-deild Alþingistíðinda. (831)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson:

Herra forseti. Út af þessari fyrirspurn hv. þm. Siglf. vil ég aðeins taka fram, að ég hlustaði ekki á yfirlýsingar þær, sem hann vitnaði í, og verða hæstv. ráðh. sjálfir að svara fyrir það, en um ákvæði 11. gr. gef ég engar yfirlýsingar, hvernig þau verða framkvæmd, ef frv. verður samþ. Það verður athugað innan ríkisstj. síðar. Sé ég mér ekki fært að svara fyrirspurn hv. þm. Siglf. öðruvísi.