06.03.1951
Sameinað þing: 49. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)

150. mál, fjáraukalög 1948

Gísli Jónsson:

Ég vil mótmæla því, sem hv. síðasti ræðumaður sagði. Honum er bezt kunnugt um, hvaða afstöðu Framsfl. hefur haft um afgreiðslu fjárlaga, og ég hef orðið var við, að þessi flokkur hefur breytt um viðhorf í þessum efnum eftir að núv. fjmrh. tók við fjármálaráðherraembættinu. Annars skal ég ekki misbjóða hæstv. forseta með löngum ræðuhöldum um þetta mál, en e.t.v. gefst tækifæri til þess að ræða þetta síðar.